|
| | | | | | | | | | | |
| | | | | | | | | | | | |
|
Anna hefur síðastliðin ár verið afar áberandi meðal íslenskra tónskálda af ungu kynslóðinni. Verk hennar eru flutt reglulega um alla Evrópu og í Bandaríkjunum af flytjendum á heimsmælikvarða, íslenskum sem erlendum. Verk hennar hafa hljómað á hátíðum á borð við Nordic Music Days, Prague Premieres, Festival Nordischer Klang í Þýskalandi, Sumartónleika í Skálholti, Ung Nordisk Musik og Myrka Músíkdaga svo fá eitt sé nefnt. Verk Önnu Sex mínútur var valið af Ríkisútvarpinu á Alþjóðlega tónskáldaþingið sem fór fram í Vín árið 2005 og var verkinu í kjölfarið útvarpað um allan heim.
Meðal tónlistarmanna, hópa og hljómsveita sem leikið hafa og/eða pantað verk eftir Önnu má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hljómeyki, Mótettukór Hallgrímskirkju, Aton/Njúton, Adapter Ensemble, Athelas Ensemble, Nordlys ensemble, Vocal ensemble EMO, Vocal ensemble Talla, Harpverk, Elfu Rún Kristinsdóttur fiðluleikara, Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara, Sigurð Halldórsson sellóleikara, Frank Aarnink slagverksleikara, Katie Buckley hörpuleikara, Stephanie Aston söngkonu, Goska Isphording semballeikara, auk fjölda annarra tónlistarmanna.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hljóðritað tvö hljómsveitarverka Önnu, og var annað þeirra flutt á áskriftartónleikum hljómsveitarinnar undir stjórn Christian Lindberg þann 30. mars 2006 við afbragðsgóðar undirtektir. Verk Önnu hafa jafnframt komið út á nokkrum geisladiskum, má þar nefna Roto con moto með tónlistarhópnum Njúton sem hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008.
Anna stundaði nám í sellóleik um 12 ára skeið, meðal annars undir handleiðslu Sigurðar Halldórssonar og Gunnars Kvaran. Hún sótti einnig ýmis námskeið, masterklassa og einkatíma hjá erlendum sellóleikurum svo sem Colin Carr, Raphael Walfish og Erling Blöndal Bengtson. Þá kenndi hún sellóleik á árunum 1997-2006 við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Anna lauk BA-gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2004 þar sem aðalkennari hennar var Mist Þorkelsdóttir. Árið 2006 hélt hún í framhaldsnám í tónsmíðum við University of California í San Diego í Bandaríkjunum, en stofnunin gegnir leiðandi hlutverki hvað varðar nútímatónlist. Þaðan lauk hún Mastersgráðu í tónsmíðum vorið 2008 og stundar nú doktorsnám við sama skóla í samstarfi við Rand Steiger tónskáld og hljómsveitarstjórnanda. Áætluð námslok eru árið 2010. Hún hefur einnig sótt námskeið hjá fjölda tónskálda í UCSD og víðar, svosem hjá Chinary Ung, Roger Reynolds, Philippe Manoury og Tristan Murail.
Anna hefur sinnt aðstoðarkennslu við University of California í San Diego síðan árið 2006 þar sem hún hefur kennt tónlistarsögu og tónlistargreiningu.
Á næstu vikum hljóma verk Önnu á tónleikum á Íslandi, í Finnlandi, Danmörku og víðar. Einnig eru fyrirhugaðar hljóðritanir og útgáfur á ýmsum verkum Önnu, í flutningi Hljómeykis, Hymnodiu, Mótettukórsins og fleiri, meðal annars fyrir Ríkisútvarpið en Anna er höfundur jólalags Ríkisútvarpsins í ár.
"Síðasta verkið á efnisskránni var These Few Words eftir Önnu
Þorvalds. Textinn er eftir Octavio Paz og úr fábrotnum línum hans skóp
Anna magnaðan tónaseið, myrkan og óræðan. Tónlistin var hrífandi í
mergjaðri túlkun kórsins, síbreytilegir skuggar liðu um hugskot manns
og dökkur kontrabassinn undirstrikaði sortann… tónlistin [var]
eftirminnileg og ég hlakka til að heyra hana fljótt aftur."
Jónas Sen, Morgunblaðið 3. nóvember 2008
“Verkið Frankly eftir Önnu Þorvaldsdóttur var fallega ljóðrænt... Úr varð ljóðræn tónlist sem virtist segja heila sögu.”
Jónas Sen, Morgunblaðið 4. Nóvember 2006.
“Verkið [sundrung - eining] er byggt á skýrt afmörkuðum efnivið sem unnið er með á markvissan, öruggan og sannfærandi hátt. …
Sundrung er hrífandi tregaljóð. … Tónskáldinu tekst að gæða hverja hreyfingu efnisins ríkri tilfinningu og hver hending hefur merkingu. …
Mjög þroskuð tónsmíð og áhrifamikil.”
Úr umsögn prófdómara, Listaháskóli Íslands maí 2004
“Anna S. Þorvaldsdóttir átti tvö verk á dagskránni, annars vegar "Heyr þú oss himnum á", sem er sérstaklega bjart og fallegt verk…, hins vegar frumflutninginn "Heyr mína sál", sem var öllu myrkara og alvarlegra verk... Að mínu mati voru verk Önnu S. Þorvaldsdóttur hvað eftirtektarverðust af mörgum mjög góðum verkum, vegna frumleika og sterkra höfundareinkenna í verkum hennar”
Ólöf Helga Einarsdóttir, Morgunblaðið 29. Janúar 2007.
Anna S. Þorvaldsdóttir